Janúarráðstefna Aglow í Evrópu fór fram dagana 23.–25. janúar í Verona á Ítalíu.
200 gestir sóttu ráðstefnuna frá 25 Evrópuþjóðum. Alls tóku níu Íslendingar þátt í ráðstefnunni og var yndisleg upplifun að taka þátt í lofgjörð og bænasamfélagi. Hlusta á kröftuga prédikun og fræðslu.
Ræðufólk ráðstefnunnar voru Nancy McDaniel, forseti Aglow International í USA og eiginmaður hennar Dave McDaniel. Yfirskrift ráðstefnunnar var Mantled for kingdom. Nánar verður fjallað um efni og áherslur ráðstefnunnar síðar.
