Evrópuráðstefna Aglow International í Vilnius Litháen 23. – 26. Janúar 2025
Þú ert velkomin að taka þátt í Evrópuráðstefnu Aglow. Dagana 23. – 26. Janúar 2025 sem verður haldin í Vilnus, höfuðborg Litháen. Vilnius hefur verið nefnd Jerusalem norðursins.
Ráðstefnan stendur í 3 daga. Yfirskriftin er „ Stígum hærra“ sem er tekið frá Op.4;1- Opnar dyr á himninum og raustin, sem hljómaði sem lúður gylli og ég hafði heyrt áður, sagði við mig: „Stíg upp hingað og ég mun sýna þér það sem verða á eftir þetta.“
Ráðstefnan:
Gist er á glæsilegu hóteli „The Polish Cultural Center **** Dom Kultury Polsk ul. Naugarduko g.76“ og fer ráðstefnan fram í samkomusal á sama stað.
Ræðumenn og konur verða: Edda M. Swan, s Jack Van De Tang frá Hollandi, Ron Cantor frá Ísrael, Ron er hluti af teymi Asher Intrader og Tikkun Global Ministries.
Tónlist og lofgjörð er í umsjá Söru frá UK
Meira um ræðumenn og konur:
s Jack Van De Tang frá Hollandi: Þau okkar sem fylgjast með umfjöllun um Ísrael – Palestínu/Gasa og andgyðinglegan áróður. Upplifum Jack Van De Tang sem spámannlega rödd fyrir endatímana og þjóðirnar gegn Ísrael. Sterkur málsvari fyrir Ísrael ..lestu: https://www.icej.org/blog/an-ominous-day-in-the-hague/
Ron Cantor:
Er messianskur gyðingur, býr í Ísrael ásamt fjölskyldu sinni. Hann vinnur náið með Asher Intrader og Tikkun Global. Ron er skemmtilegur ræðumaður og á auðvelt með að hrífa fólk með sér.
Evrópustjórnin mun einnig taka til mál, Edda M. Swan, Inger Person og fl.
Loka skráning er 10. Nóvember nk.
Vinsamlegast ath. Loka skráning á ráðstefnunna er 10. Nóv. nk,
Vegna samnings við ráðstefnuhótelið í Vilnius er óskað eftir að við greiðum
ráðastefnugjaldið, hótelkostnað ( gisting og fæði) í síðastalagi 10. nóv. nk.
Nánari upplýsingar um greiðslu ( evrur) sendum við til þín í netpósti
hafðu samband við okkur ef þú hefur tök á að fara á þessa mjög svo blessuðu og áhugaverðu ráðstefnu.
Netfang: aglowisland@gmail.com
eða í GSM: Helena Leifs 770 2218 / Edda M. Swan 867 7735
Dagskrá:
Fimmtudagur 23. Janúar
kl. 15.30 – Skráning á ráðstefnuna
kl. 16.30 – Bænasamvera
kl. 18.30 – Kvöldverur
Kl. 20.00 -Setning – Lofgjörð, bæn.
Föstudagur 24. Janúar
kl. 9.30 – Samkoma ( Lofgjörð og fyrirlestur)
kl. 12.00 – Hádegisverður
kl. 14.00 – Samvera
kl. 18.00 – Kvöldverður
Kl. 19.30 – Samkoma, lofgörð og prédikun
Kl. 19.30 Samkoma, lofgörð og prédikun
Laugardagur 25. Janúar
kl. 9.30 – Samkoma , (lofgjörð og fyrirlestur)
kl. 12.00 – Hádegisverður
Frjáls tími –
Versla eða Skoðunarferð í Vilnius – Gyðingahverfið.
Kl. 18.00 – Kvöldverður.
Kl. 19.30 – Samkoma, lofgjörð og prédikun
Sunnudagur 26. Janúar
kl. 7.00- 10.00 Morgunverður
Áhugavert að skoða mbl. 23. sept. 2013
Var þess er minnst í Litháen í að 70 ár eru liðin frá því að þýskir nasistar fluttu á brott alla íbúa gyðingahverfis höfuðborgarinnar Vilnius þegar seinni heimsstyrjöldin geisaði og lögðu það í rústir. Gyðingar höfðu þá búið um aldir í borginni og hún gjarnan kölluð Jerúsalem norðursins.:
Hvar er Aðalsamkunduhús gyðinga í Vilna?
Gamli bærinn í Vilnius er áhugavert svæði þar sem Aðalsamkunduhús gyðinga í Vilna skipar mikilvægan sess. Það er margt að skoða og sjá í hverfinu og um að gera að nýta tímann til að heimsækja helstu kennileiti og áhugaverðustu staðina. Ef þú þarft að finna eitthvað sniðugt að sjá og gera þegar þú ert á svæðinu gæti verið að Town Hall Square og Vilnius Town Hall henti þér.
Heimferð
PS: Flug til og frá Íslandi: Við höfum kannað flug td. gegnum Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólm eða Helsingi.
::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
Eldri fréttir og námskeið
Varðmenn á Múrnum
Námskeiðið verður haldið í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60
föstudagskvöldið 31. janúar kl. 20:00-21:00 og laugardaginn 1.febrúar kl. 09:00-17:00.
Kennari: Edda Matthíasdóttir Swan, formaður landsstjórnar Aglow á Íslandi
Tilgangur:
Tilgangurinn með námskeiðinu er að fræða fólk og gefa þeim biblíulegan grunn til að geta skilið og komið áfram þekkingu um Ísrael fyrr og nú. Námskeiðið er mikilvægt tæki sem hjálpar fyrirbiðjendum að biðja á hnitmiðaðri hátt fyrir landinu og þjóðinni, og veitir þekkingu til að geta fjallað um Ísrael og miðausturlönd.
Handbók – Námskeiðsgögn:
Hver þátttakandi fær bók með fræðsluefni skrifað af kristnum leiðtogum sem hafa hjarta fyrir Ísrael og góða þekkingu á sögu landsins.
Kennari:
Námskeiðið er kennt í fimm líflegum fyrirlestrum ásamt myndböndum og frásögum af því sem efst er á baugi. Kennari er Edda M. Swan
Námskeiðið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir.
Námskeiðisgjald er kr. 4000.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 28. janúar nk.
Skráning: aglowisland@gmail.com
Eldri Námskeið:
-
AÐ BREYTA LEIKNUM
Föstudagskvöldið 10. nóvember kl. 20:00
Laugardaginn 11. nóvember kl.09:00 til 17:00
Kennari er Graham Cooke. Graham Cooke er mjög eftirsóttur spámaður, kennari og prédikari í guðsríki og hann hefur skrifað margar bækur.
Jane Hansen Hoyt segir eftirfarandi um þessi námskeið: Hér er á ferðinni öflugt námskeið sem miðar að því að þroska fólk svo það fái staðið stöðugt í nærveru Guðs og stigið inn í rétta sjálfsmynd sína sem sigurvegarar.
Boðskapur námskeiðsins á rætur sínar í kennslu Páls í Nýja Testamentinu, sem hvatti fólk þess tíma til að lifa því lífi sem því var gefið eftir að það hafði tekið við fullnuðu verki Jesú Krists í lífi þess. Í 2.Kor. 5,17 segir: hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til.
Uppgötvaðu hvernig þú ert þekkt/ur á himnum. Þegar þú skilur að Guð lítur ekki á mistökin í lífi þínu, heldur á Krist sem lifir í hjarta þínu, öðlastu lausn undan þeim lygum sem reyna að koma í veg fyrir að þú framgangir í frelsi því sem fylgir því að lifa sem barn Konungsins. Það var aldrei ætlun Guðs að þú lifðir á afgöngum eins og týndi sonurinn. Guð vill að við lifum í samræmi við reynslu okkar í guðsríkinu. Við bjóðum þér að koma í þetta ferðalag mikilla uppgötvana með okkur.
Dæmi um umfjöllunarefni námskeiðsins er:
1. Hvernig ertu þekkt/ur á himnum
2. Að grundvalla þinn innri sigurvegara
3. Hugarfar Krists
4. Að enduruppgötva lífið í ávexti Andans
5. Lögmál Andans í kristnu líferni.
