Janúarráðstefna Aglow í Evrópu fór fram dagana 18.-21. janúar í Prag.
180 gestir sóttu ráðstefnuna frá 25 Evrópuþjóðum. Alls tóku níu Íslendingar þátt í ráðstefnunni og var yndisleg upplifun að taka þátt í lofgjörð og bænasamfélagi. Hlusta á kröftuga prédikun og fræðslu.
Ræðufólk ráðstefnunnar voru, Nancy McDaniel, bænaleiðtogi Aglow International í USA, Edda M. Swan frá Íslandi og Nonnie McVeigh frá Bretlandi auk formenna hinna ýmsu þjóða sem fluttu stutt innlegg. Yfirskrift ráðstefnunnar var Glory Rising. Nánar verður fjallað um efni og áherslur ráðstefnunnar síðar.
