Aglow á Akureyri.
Verður með fundi í Glerárkirkju í vetur kl. 19.30.Við ætlum að hittast á fimmtudögum í vetur og vera með samveru 1. október, 29. október og 3. desember í Glerárkirkju. Takið dagana frá. Allar konur innilega velkomnar. FB- síða
Aglow í Garðabæ.
Fyrsti fundur okkar á þessu góða hausti verður 14. sept. kl. 20.00 í Skátaheimilinu við Bæjarbraut. Hrönn Svansdóttir framkv.stj. ABC er gestur okkar. Lofgjörð og bæn.
5. október; Vitnisburðir frá helginni í Skálholti. Guðrún Erlingsdóttir kynnir og syngur lög af nýja disknum sínum Sólarlag. 2. nóvember; Ræðukona, lofgjörð og bæn
7. desember; Jólafundur. Allar konur innilega velkomnar.
FB- siða.
Aglow í Vestmannaeyjum.
Aglow í Vestmannaeyjum hefur starfað í 36 ár. Þær koma saman í sal Landakirkju fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 19.30. Dagskrá haustsins er: Hugleiðing, vitnisburðir, bæn og lofgjörð. Fundir verða 2. sep., 7. okt., 4. nóv. og 2. des. Allar konur innilega velkomnar.
Aglow í Stykkishólmi.
Aglow í Stykkishólmi er kertaljósahópur. Þær hittast á miðvikudögum 1-2 sinnum í mánuði í sal Stykkishólmskirkju. Stundirnar eru innihaldsríkar, stutt hugleiðing og bæn fyrir fjölskyldum, samfélaginu og þjóðinni.Allar konur eru innilega velkomnar.
