Guð kallaði mig til Íslands til að biðja fyrir landinu ykkar.

Laura Harris verður gestur okkar í Skálholti 2.–4. okt. nk. Hún hefur komið fjórum sinnum til Íslands til að biðja fyrir landinu og þeim málefnum sem Guð hefur lagt á hjarta hennar. Við fórum með henni í bænaferð á Kjalarnes sl. laugardag, beðið var við Keltneska krossinn og beðnar út bænayfirlýsingar fyrir land og þjóð. Í dag gegnir Laura starfi leiðtoga samtakanna Aglow International í fylkinu Kentucky.

Laura mun tala til okkar á laugardeginum kl. 10.00 og kl.14.00

Laura Harris er eftirsótt sem yrirlesari og kennar bæði í Bandaríkjunum og víðar um heim. Hún þjónar Drottni með kennslu, þjálfun leiðtoga, trúboði, frelsi og fyrirbæn fyrir lækningu. Hún býr einnig yfir sterkri gjöf opinberunar og spádóms, ásamt gjöfum visku og þekkingar.

Laura lauk B.A.-prófi í sálfræði frá Western Kentucky University og lagaprófi frá lagadeild University of Louisville. Hún stundaði nám við Asbury Theological Seminary og hlaut þaðan meistaragráðu í guðfræði (Master of Divinity). Þá lauk hún doktorsgráðu í þjónustufræðum (Doctor of Ministry) frá United Theological Seminary, þar sem hún var í fyrsta útskriftarhópi „Randy Clark Scholars“-námsbrautarinnar. Laura hefur einnig unnið að MBA-gráðu við University of Florida og lokið meira en helmingi námsins, en framvindan stöðvaðist vegna aðstæðna tengdra Covid-faraldrinum.

Skrif hafa verið henni hugleikin þar sem hún hefur mikla ánægju af því að miðla öðrum þeim opinberunum sem Drottinn hefur gefið henni. Laura hefur gefið út fjölda bóka.

Leave a comment