Aglow hefur starfað í Eyjum í 35 ár og er margs að minnast. Margar konur hafa unnið ötulega og hafa sinnt margs konar þjónustu í Aglow. „Ég er endurnærð og spennt fyrir næsta Aglow fundi sem verður í kvöld 3. sept kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við byrjum með veglegum veitingum og við syngjum saman … Continue reading Aglow í Eyjum 35 ára
Category: Blogg
Aglow á Íslandi heldur ráðstefnuna " Rísum hærra" 27.-28 sept. Tveir dagar hlaðnir af gleði, blessun og dýpra samfélagi við Guð. Gestur ráðstefnunnar og aðal ræðukona er Nancy McDaniel frá USA. Nancy er kröftugur prédikari og kennari, hún er spámannleg og öflug guðskona. Ráðstefnan er haldin í húsnæði Íslensku Kristkirkjunnar, Fossaleyni 14a, í Grafarvogi. Ráðstefnugjald kr. … Continue reading Ráðstefna 27.-28 sept 2024
Aglowkvöld á mánudaginn 9. sept kl.20.00. Lofgjörð, bæn og yndislegt samfélag. Alltaf eitthvað gott með kaffinu. Kæru vinkonur, við hlökkum til að hittast aftur eftir sumarfrí í Skátaheimilinu við Bæjarbraut.
