Aglowhelgi í Skálholti

Landstjórn Aglow á Íslandi er að undirbúa helgi í Skálholti dagana 29. sept. - 1. okt. nk. Yfirskrift helgarinnar er : Undir Opnum Himni. Aglowkonur hafa átt frábæra daga saman í Skálholti sl. 6 ár. Fræðsla - Lofgjörð - Bæn - Góður matur - Gleði og gaman - Útivera. Nánari upplýsingar síðar

Gleðilegt sumar

Gleði og birta einkennir tíman sem er fram undan. Sumarið er kærkomið eftir fremur langan og kaldan vetur. Aglowstarfið fer í sumarfrí frá 1. Júni nk. Hópstarfið á Akureyri, Garðabæ, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum heldur lokafundi núna í maí. Á Akureyri verður fundur 9. Maí kl. 20.00, gestur fundarins verður Þóranna Sigurbergsdóttir, formaður Aglow í Vestmannaeyjum. … Continue reading Gleðilegt sumar

Bænagangan 2023

Fögnum sumri og fögnum lífinu með bænagöngu á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl, eins og við höfum gert undanfarin ár. Við hvetjum alla biðjandi menn og konur að taka þátt. Sextán gönguleggir á höfuðborgarsvæðinu til að velja um og svo verða bænagönguhópar á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar á Lindin.is