Fögnum sumri og fögnum lífinu með bænagöngu á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl, eins og við höfum gert undanfarin ár. Við hvetjum alla biðjandi menn og konur að taka þátt. Sextán gönguleggir á höfuðborgarsvæðinu til að velja um og svo verða bænagönguhópar á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar á Lindin.is
Category: Blogg
Efni alþjóðlegrar samkirkjulegrar bænaviku fyrir einingu kristninnar kemur að þessu sinni frá Bandaríkjunum. Það er Kirknaráð Minnesota, Minnesota Council of Churches, sem valdi yfirskriftina: ,,Lærið að gera gott, leitið réttarins" (Jes 1.17). Sjónum er beint að þörfinni fyrir réttlæti og jöfnuð, óháð kynþætti, stöðu. Sjá dagskrá bænaviku á FB.
Heil og sæl, Gegnum árin höfum við Aglowkonur í Garðabæ, valið eitt ákveðið verkefni sem Jóla-Kærleiksverkefni. Einstæðar mæður, öryrkjar, einbúar, fólk sem býr við þröngan kost og án húsnæðis. Konukot, Hjálpræðisherinn, Samhjálp, ABC-barnahjálp. Einstaklingar og fyrirtæki hafa stutt við verkefnin og erum við mjög þakklátar. Í ár höfum við valið að blessa konur frá Úkraínu. Verkefnið er … Continue reading Blessum konur frá Úkraínu.
