Loksins geta Aglowhóparnir víðsvegar um landið komið saman. Eftir langt hlé vegna covid-19 samkomubanns eru Aglowhóparnir að undirbúa fundi með sínum konum. Aglow í Garðabæ heldur fund í Skátaheimilinu við Bæjarbraut mánudaginn 1. mars kl.20.00 á fundinum verður mikil lofgjörð, bæn og vitnisburðir. Aglow í Vestmannaeyjum kemur saman 3. mars kl.20.00 í samkomusal Landakirkju. Aglowkonur i Stykkishólmi hittast í heimahúsi og Aglow á Akureyri heldur sína fundi í samkomusal Glerárkirkju.