Aglow verður með samveru þriðjudagskvöldið 22. febrúar kl 20-21:30 í safnaðarheimili Glerárkirkju. Sigríður Elín Kjaran, foringi í Hjálpræðishernum verður með hugvekju og kynnir starfið. Rannvá Olsen sér um lofgjörð.Allar konur hjartanlega velkomnar. Við hlökkum til að eiga notalega stund með ykkur
Category: Blogg
Því miður var ekki Aglow fundur í febrúar. Stjórn Aglow í Eyjum taldi best að bíða með að hittast. Vonandi getum við komið saman 2. mars en þá verður kominn Öskudagur. Fyrir stuttu var Evrópu Aglow ráðstefna og var hægt að fylgjast með henni á rafrænt gegnum Zoom. Yfirskriftin var „Byggjum hús Guðs“ og kom … Continue reading Kveðja frá Aglow í Vestmannaeyjum
Janúar mánuður er tileinkaður bæn. Við erum sammála um að það er áríðandi að biðja og leita Guðs allt árið. Við höfum verið að kynna " Kalebbænina" bæn sem hefur farið sigurför um allan heim. Bænin er stutt og hnitmiðuð. Í bókinni " Undir opnum himni. Að verða blessandi fólk" er fjallað um bænina og … Continue reading Kalebbænin er orðin alþjóðlegt fyrirbæri
