Páskafundur Aglow í Garðabæ 4. april

Innilega velkomin á Páskafund Aglow, mánudaginn 4. april kl.20.00.Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur verður gestur okkar.  Sigurbjörn hefur skrifað fjölda bóka og blaðagreina um bænina og trúfesti Guðs. Síðustu ár hefur hann einnig deilt þeirri reynslu að lifa með krabbameini og hefur hann verið mörgum hvatning og styrkur með skrifum sínum. Kæra vinkona, fundurinn verður innihaldsríkur með … Continue reading Páskafundur Aglow í Garðabæ 4. april

Söfnun fyrir barnshafandi konum í Úkraínu

Söfnun fyrir fæðingapökkum handa barnshafandi konum í Úkraínu. Aglow á Íslandi hefur ákveðið að leggja söfnunarátaki Ljósmæðrafélagi Íslands lið. Um 80 þúsund konur í Úkraínu eigi von á barni á næstu þremur mánuðum og eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þá hafast margar þeirra við í neðanjarðarbyrgjum, á lestarstöðvum og í kjöllurum sjúkrahúsa oft … Continue reading Söfnun fyrir barnshafandi konum í Úkraínu

Barna- Bibliuapp

Nú geta börn notað Biblíuapp fyrir börn á íslensku. Biblíufélagið í samstarfi við OneHope, með góðri hjálp sjálfboðaliða, með frábærum stuðningi Bakhjarla Biblíunnar og annarra styrktaraðila Biblíufélagsins hefur látið útbúa íslenska útgáfu af Biblíuappi fyrir börn. Það er von okkar að sem flest börn fái að kynnast söguheimi Biblíunnar. Upplýsingar http://www.biblian.is